Les Binet - Morgunfundur ÍMARK

Card image cap

Les Binet - Morgunfundur ÍMARK

17 900 ISK 19.09.19 - 09:00 - 19.09.19 - 11:30

Les Binet verður gestur á morgunfundi ÍMARK í september. Hann hefur áralanga reynslu á sviði markaðsmála. Les hefur ásamt Peter Field rannsakað skilvirkni markaðsaðgerða, hann skrifar og heldur fyrirlestra um markaðsmál um allan heim. 

Í dag starfar hann hjá Adam&Eve stórri auglýsingastofu í London og ber þar starfstitilinn "Head of Effectiveness". 

Í erindi sínu "Marketing effectiveness in a digital era" mun hann ræða þær hröðu breytingar sem hafa átt sér stað á síðastliðnum árum og velta upp spurningum um það hvernig við höldum markaðsstarfinu skilvirku þegar miðlum fjölgar og leiðir til þess að nálgast viðskiptavini verða flóknari. 

Morgunfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 19. september í Gamla bíói. Húsið opnar klukkan 08:30 og dagskrá hefst klukkan 09:00.

E-Commerce by SalesCloud
ÍMARK-samtök markaðsfólks á Ísl partners with SalesCloud to provide secure sales & payment processing.